Sævar Ö
reit kl.
00:03
Já. Það er ótrúlegt hvað maður freistast oft til þess að endurvekja þetta svokallaða hópblók. Stundum bara finnur maður þessa ótrúlega sterku þörf fyrir að segja eitthvað sem öllum er sama um og enginn vill hlusta á (varla maður sjálfur) en maður þarf samt að koma frá sér. Svo núna vitið það, ég er að nota ykkur sem lesið þetta! Ha ha.
Annars er allt rólegt þessa dagana. Maður er bara að slappa af þangað til maður fer austur að vinna. Merkilegt samt hversu þreyttur maður getur orðið á því að slappa af þrátt fyrir hversu hátt metið það er "að slappa af". En það verður víst nóg að gera þegar þar að kemur.
Völli og Karna fóru annars austur á föstudaginn á honum Sæmundi. Á Sæmundi í Skepalæk.
Jæja, góða nótt.
Völundur
reit kl.
12:14
Jæja, sit á sal FSu og er að hlusta á rapp, brjálað, Pabbi er að góla fram úr tækjaherberginu og segja okkur að skoða fyrstu síðuna í "textaljósritinu". Skemmtilegt
Hvort er HipHop meiri ljóð- eða tónlist?
Völundur
reit kl.
15:59
Jæja, ég er kominn.
Best að reyna að skrifa hérna næstu vikurnar.
Málin standa þannig að ég er í áfanga hjá manni sem heitir Jón Özur, hann lætur okkur blóka. Ég var búinn að búa til vefsvæði á www.folk.is, það var ekki allveg að gera sig.
ótrúlega slappt, maður má "velja" útlit á vefinn sinn, valið samanstendur af Britney Spears, Avril Lavigne, Ricki Martin og Schumaker, eða einhverju álíka rusli.
Þannig að, ef félagar mínir hérna hafa einhvern áhuga á því að skrifa smotterí, þá endilega, glaðari gæti ég ekki orðið.
Það hefur nú margt gerst síðan þessi vitleysa hætti síðast, Atli er útskrifaður, Sævar flúði símann sinn til Mexíkó, Gummi er fluttur út og inn í íbúð tenga-ömmu og afa í kópavogi og vinnur sem Atvinnuskáti. Bjarti er ennþá í gryfjunni og er orðinn duglegur að læra - hann er líka að fara til frakklands eftir mánuð. Birkir er að læra í bænum, ekki heyrt í honum lengi.
Síðustu dagar hafa farið í um-brot á "hey þú" skítamóralls-söngleikjarkynningarefni, var að senda leiksrána yfir netið rétt áður en ég hljóp af stað í tíma.
Ég er að hugsa um að hætta núna og fara að hugsa um hvað ég eigi að blóka um næst, hugsa um að hugsa um að hætta...
Takk melir, bið að heilsa.
Atli
reit kl.
15:37
Ég er hér!
...eða hvað?
Sævar Ö
reit kl.
01:04
Hvar eru hinir?
Góður quote:
- Girls are like internet domain names, the ones I like are already taken.
- well, you can still get one from a strange country :-P
Sævar - fyrir brandara
skrá inn
Notandi:
Lykilorð:
Mundu mig:
Lömbin okkar
Tenglar
Svalt
Ósvalt
Skjalasafn
Vikan
Javascript nauðsynlegt
Vikan
Javascript nauðsynlegt
Vikan
Javascript nauðsynlegt
Vikan
Javascript nauðsynlegt
Vikan
Javascript nauðsynlegt